10.11.2006 14:53:19 / Himinbjorg

Ákvarðanir

Sit í skólanum og er að byggja módel (er að bíða eftir að límið þorni), það er góð tilfinning að vera komin svona á fullt aftur og þá meina ég gjörsamlega á fullan kraft, langir dagar í skólanum og margir kaffi bollar. Næstu tvær vikur er kursus hjá okkur með tilheyrandi hópaverkefnum og samsíða kursinum höldum við áfram í okkar verkefni og við skilum stórum hluta verkefnisins þann 15. des. Svo var ritarinn okkar svo elskuleg að senda e-mail á alla um porfoliuna sem við skilum í febrúar svona bara til að stressa okkur aðeins meira. Við skilum öllum verkefnunum okkar á A3 formi, þá meina ég öll verkefni sem við höfum gert hingað til frá því við hófum skólagönguna....þessi mappa segir svo til um hvort við "megum" taka bachelorverkefnið í vor. Púff!! Ágætis pakki væntanlegur 8|

Ræddi við hana Elínu í hádeginu í dag og áttum við ágætis spjall um framtíðina og hvað á að gera eftir bachelorverkefnið....? Halda áfram hér, taka praktik, fara í annan skóla, taka pásu frá arlitektúr.....ákvarðanir, ákvarðanir, af hverju er mamma ekki hér svo hún geti bara ákveðið þetta allt fyrir mig....hún var alltaf góð í því í gamla daga :lol:

Á morgun er housewarming hjá Casper úr gamla bekknum mínum og verð ég að viðurkenna að mig langar mikið til að hitta þessa krakka aftur eftir langan tíma, svo margt að tala um, svo er annað party í boði líka, þar þekki ég flóruna minna en gæti samt verið huggulegt...hmmm, hvað á ég að gera? Það er alltaf svona að allt kemur í einu, í staðin fyrir að dreifast jafn yfir helgarnar. Ég byrja að minnsta kosti laugardaginn á að vinna í SMAK og melti þetta aðeins. Svo er maðurinn að verða 29 ára, hvað á að kaupa...?? Ég er alveg lost í svoleiðis málum....auðvitað á hann allt, og ef það er eitthvað sem hann vantar ekki þá er það föt!! hmmm

Eva skrifaði
Þú veist sjálf hvaða leið hentar þér þó þér finnist kannski eins og valið sé erfitt. Innst inni viltu eitthvað ákveðið þó það sé kannski ekki alveg ljóst. Svo geturðu auðvitað alltaf hringt í mömmu!
Jóhanna skrifaði
hehe..já það er rétt!
Margrét skrifaði
Mér fannst standa "svo er maður að verða 29 ára..." Ég hélt um stund að ég hefði sofið af mér eins og 5 ár eða svo....
Jóhanna skrifaði
nei, elskan, engar áhyggjur, engin grá hár hér....hehe

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.