01.03.2007 12:31:41 / Himinbjorg

SLUT!!

 

LOKAÐ!!

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 14:50:21 / Himinbjorg

Fátt nýtt...

...af sveitungum. Það er kólnar og hlýnar til skiptis og enn bíð ég eftir snjónum. Föðursystir mín, hún Inga og Bragi maður hennar, komu við hjá mér í búðinni í dag. Þau eru stödd í Kaupmannahöfn fram á þriðjudag og komu færandi hendi með pakka frá mömmu! Stóðst ekki mátið að opna, annars vel límdan pakkann, þó svo mig grunaði annars hvert innihaldið væri. Jólapakkar og jólasælgæti :):) Heil 800g af síríus konfekti, jólapakkar frá hinum og þessum, jólakort, lakkrís, brjóstsykur og enn meira súkkulaði.....mmmm...get ekki beðið eftir að fá að gæða mér á þessum kræsingum, held ég verði að innsigla pakkann vel svo ég missi mig hreinlega ekki....hehe:lol:

Við stelpurnar í vinnunni hittumst í gær og borðuðum Thai-mat heima hjá einni þeirra. Það var að sjálfsögðu spjallað fram eftir kvöldi um heima og geima þar til við loksins rifum okkur uppúr sófunum og röltum inná Ideal-bar. Púff, þar var allt pakkað af fólki og mikið dansað. Ég var svo sniðug að kaupa tvo Srawberry daiquiri...og á leiðinni inní mannþröngina aftur tókst fólki auðvitað að rekast all vel á mig hingað og þangað svo ég sullaði allsvakalega yfri HVÍTA bolinn minn....sem í dag er ónýtur :( Þá ákvað ég að ég væri búin að fá nóg og hjólaði heim, enda átti ég að mæta í vinnu klukkan 12.

Adios


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 08:43:07 / Himinbjorg

Hey, muniði eftir þessum?

Línan...í Svíþjóð heitir hann "Linus på Linjen"...hehe..

http://www.tv5.org/TV5Site/la_linea/index.php?numero=20

Tognaði á stóru tánni á æfingu í gær og púff hvað það var vont. Nú geng ég um og haltra eins og gamall maður!


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 11:16:19 / Himinbjorg

Sit heima

Ákvað að sitja heima í dag við tölvuna og vinna í verkefninu þar sem ég á hvort eð er að mæta í vinnu í SMAK klukkan 14 í dag. Vaknaði fyrir allar aldir og byrjaði að hamast í SketchUp. Svo fannst mér nú vera tími á smá ferskt loft og ákvað að koma við í nýja Conditoríinu sem var verið að opna hérna í næstu götu. Skellti mér á súkkulaði croissant og kaffilatte og langaði svo að smakka danska kleinu (klejne). Hún var vond, þurr og asnaleg og pinkulítil í þokkabót. Þegar ég kom heim og ætlaði að gæða mér á þessum kræsingum, var kaffið orðið volgt, því lokið var í vitlausri stærð og hélt því engum hita, og súkkulaði croissanten var vondur. :^) Oh...svona dagar.....bleh.

Það sem þó gladdi hjarta mitt var að þegar ég las bloggið okkar stelpnanna http://www.blog.central.is/sjofraeknu sá ég að Ásrtalíufarinn okkar hún Guðný litla er að koma heim til Íslands um jólin. Ekki seinna vænni, er búin að vera allt of lengi í burtu, en svo er aftur annað mál að ég fæ ekkert að sjá hana þar sem ég hef ákveðið að koma ekki heim þessi jól....:$


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 19:56:31 / Himinbjorg

Jólalög...

Skellti mér í Amagercenteret eftir skóla í dag og kláraði að kaupa inn það helsta sem eftir er af jólagjöfum og tilheyrandi. Inni í Føtex var svo verið að spila jólalög, er ekkert búin að heyra af þeim hingað til, hef svosum ekkert verið að sækjast eftir því heldur, nema hvað að þetta var svona slísý jóladiskur sem var verið að spila. Jólalögin sungin aðeins vitlaus og ekki með réttu röddunum, heldur einhverjum eftirhermum, eins og þegar ég heyrði eftirlíkingu af Grease...því gleymi ég aldrei. Eftirlíking af húsgögnum og hönnnun er ásættanlegt, þó svo það sé ekki það besta sem til er, en eftirlíking af lögum og hvað þá jólalögum....æj, það verður alltaf eitthvað svo misheppnað :S

Er annars búin að kaupa kökuform og kökubox...bíð bara eftir að hafa tíma fyrir rosabakstur með 7 sortum....hehe, og er svo búin að standa sveitt við að pakka inn því sem tilbúið er af jólagjöfum og á bara eftir að kaupa efni í jólakortagerð. Púff, hef aldrei verið svona snemma í þessu....sjáum til hvort ég nái að senda allt til Íslands í tæka tíð ;)

Jólajóhanna    


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.11.2006 22:05:44 / Himinbjorg

Stelpukvöld!

Beltistökunni var frestað á síðustu stundu á föstudaginn þar sem sonur þjálfarans var sendur á spítalann. Við stelpurnar úr karatenu ákváðum samt að halda í okkar plön og hittumst hjá henni færeysku Haldis í Vanløse. Stúlkan var búin að töfra fram svona líka góðan kjúklingarétt með banönum í, ég er ekki frá því að ég verði að fá uppskriftina frá henni, því maður verður alveg húk!. Svo kom ég með vínið, alla leiðina frá Svíþjóð, Anna Margrét var svo elskuleg að kippa því með á föstudaginn, því það finnst einfaldlega ekki í Danmörku, besta stelpuvínið!! Svo var auðvitað eftirréttur, ís og konfekt og að sjálfsögðu Irish Coffee, það klikkar ekki þegar Haldis er annars vegar  :D Við sátum hellengi og spjölluðum um allt milli himins og jarðar og sötruðum á vínu og Irish Coffe....mmm ekkert betra ;) 

Verið að gæða sér á Irish Coffee og meððí.....mmmm

Þegar klukkan var farin að nálgast 12 pöntuðum við taxa í bæjinn. Stefnan var tekin á The Rock, sem er staður á Skindergade fyrir rokkara.....eheh, viðurkenni að það er ekki alveg mín sterkasta hlið en ákvað að láta mig hafa það...og varð ekki fyrir vonbrigðum skal ég segja ykkur. Þetta var hinn fínasti staður, einnig var maður búinn að ,,undirbúa" sig fyrir að dansa við rokk um kvöldið svo þetta var bara mjög gaman. Skemmtilega sérkennilegt fólk sem sækir þennan stað, ekta rokkarar með sítt hár! En það sérstaka er líka að þar eru engir innflytjendur, þeir hlusta greinilega ekki mikið á rokk....!

Biðum ansi lengi eftir leigubílnum og var orðið frekar kaaaallt....brrrr

Sophia og Katinca inni á The ROCK, og Sophia er heldur betur með rokkarataktana á hreinu :D

Þær eru svo sætar þessar elskur....;)

Góður bjór á 10kr !

Við Haldis héldum okkur við frískpressaðanappelsínusafa þegar líða fór á kvöldið.....

Það var heldur betur dansað í gær og nokkrir luftgítarar teknir hér og þar...ásamt slammi....hehe, mér er illt í hnakkanum.....hehe.

Frábært kvöld....gerum þetta aftur fljótt!

Tak, tøser...lad os gøre det igen snaaaart!


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 22:23:03 / Himinbjorg

Grænt belti á laugardaginn!!

Jim er svo kúl...ég ætla að verða eins og hann þegar ég verð stór :)

http://youtube.com/watch?v=mTXzrsF0JM8


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.11.2006 18:59:55 / Himinbjorg

"A Handful of Darkness"

Lige nu holder 3. års studerende på afdeling 6 ved Arkitektskolen i samarbejde med overbygningsstuderende fra KUA en udstilling af deres semsteropgave ud på Minørskolen. Emnet er Metaarkitektur (http://www.karch.dk/afd6/studieplan/2006-2007/2006-2007b.htm) som betyder at de arbejder i mørke og lyskilder må kun bruges som integreret element i opgaven! Studerende har arbejdet i seks grupper og har hver gruppe lavet sin egen metaarkitektur. Jeg kom specielt til at se hvad Kaja og Karól havde lavet og så selvfølgelig til at kigge på det hele, fordi det er jo vild interressant. Man kan sige at arkitektur, som rumlig konstruktion bliver artikuleret via lys og syn, selvom man ikke opfatter det selv. Jeg fik ikke helt fat i alle idéerne bag opgaverne nu i aften fordi der var mange mennesker og svært at få en grundig forklaring på alt da de først har kritik imorgen. Men som for eksempel så havde første gruppen stillet en kamera udenfør som så optager himmelen, kameraet giver så oplysningerne til en instilleret computer som så skriver dem på en stor væg via en projektor. De arbejdede så også med lyd og lys som jeg ikke helt fik fat i. En anden gruppe legede så lidt med todimensionelt rum og tredimensionelt rum også via projektor og et model i skala 1:1. Kajas gruppe har så fået udleveret et helt værelse ude på minørskolen hvor de har hængt snårer derinde, over det hele faktiskt, efter et bestemt grid, så skal man følge noget bestemt system via små lyskilder og lyd fra en film som de har taget udgangsounktet i, husker ikke helt navnet på den film. Det handler så mere om oplevelsen heller en ligefrem forklaringen som sådab. Karóls gruppe har så optaget en film efter noget bestemt system inde i et værelse inde i lokalet med fokusering på dominerende elementer. Gennem optagelsen har de så bygget model i stål, hvor måske 2cm svarer til 2sek på optagelsen og blev resultatet meget flot. Nu vil jeg ikke sige for meget fordi det er vært at se. Udstillingen er åben fra den 24.-26.. november fra kl. 12 - 18.

Min afdeling har så til gengæld fået invitation til årets julefrokost hvor temaet er konfirmation! Det bliver sjovt at se, man kan også deltage i en konkurrence om at blive kåret tidernes flotteste konfirmand....:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 17:55:56 / Himinbjorg

Regn og sne

Það hefur bókstaflega ekki hætt að rigna hérna í heila viku...er orðin frekar þreytt á þessu, alltaf rennblaut þegar ég kem í skólann. Sá samt í fréttunum að fólk var að festa sig í sköflum á Íslandi...er ekki svolítið langt síðan það var svona mikill snjór í Reykjavík, eða er ég eitthvað að bulla bara....?

http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4284383/1

Ekki svo mikið meira héðan...


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 22:12:37 / Himinbjorg

Tokyo Vesterbrogade

Langaði bara rétt aðeins til að segja frá gærkvöldinu....við áttum semsagt pantað borð á einhverjum dularfullum veitingastað niðri í bæ sem reyndist svo vera japanskur staður sem heitir Tokyo og er á Vesterbrogade. Skondinn inngangurinn inná staðinn, það var eins og maður væri að labba inn í venjulega íbúð frá stigaganginum. Staðurinn reyndist svo vera afar huggulegur með japönsku starfsfólki og allir gestirnir sátu á púðum á gólfinu. Reyndar sá ég síðar að það var mögulegt að sitja á stól við borð, heyrði í nokkrum Íslendingum sem sátu þar:) Maður komst í hálfgerðan japanskan fíling og var komin til Tokyo í huganum. Við fengum hið fínasta borð og svo byrjuðu réttirnir að hlaðast inn og voru þeir hver öðrum betri....enda sátum við í tvo og hálfan tíma og nutum alls þess kom á borðið okkar. Mæli hiklaust með þessum stað, sérstaklega til að komast aðeins frá Kaupmannahöfn, þó svo það sé ekki nema í huganum :D

Eftir matinn röltum við svo yfir á Istedgade og fórum inn á bar sem er í eigu vinar Lens og heitir Simpel V. Við fengum auðvitað kokteila á sértilboði þar sem vinurinn var að vinna á barnum, ekki vera að hafa smá sambönd :) Við sátum þar í nokkra klukkutíma og spjölluðum meðal annars við 3 skondna gamla hippa sem settust við borðið okkar. Þeir höfðu frá mörgu að segja og komumst við að því að þeir voru tónlistarmenn og spiluðu life öðru hvoru...gaman að þessu!

Ótrúlega vel heppnað kvöld :D Svo er kominn sunnudagur eina ferðina enn og á morgun tekur alvaran aftur við....stundum langar mann til að vera á svona fallega bleiku skýji aðeins lengur en maður í rauninni gerir........;)

  


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 20:31:34 / Himinbjorg

Jólagjafainnkaup

Hjólaði niðrá Strik í dag eftir skóla og ákvað að kíkja aðeins í búðir og fá innspirasjón í jólagjafir! :) Mikið af fólki greinilega í sömu hugleiðingum. Ég endaði að sjálfsögðu á að kaupa peysu handa sjálfri mér. :lol:Ég á eftir að eyða meiri peningum í sjálfa mig í þessum jólagjafakaupum með þessu áframhaldi. Það er annars ekkert kósý að labba um Strikið þessa dagana, það rignir allan liðlangan daginn og ég á enga regnkápu og gleymi alltaf að grípa regnhlíf með í töskuna. Ég er annars að spá í að hella mér út í smá leiðangur á morgun og held ég að ég fari í Field´s eða Fisketorvet fyrst veðrið er svona leiðinlegt. Sökum mikilla anna næstu helgar er best að nýta tíman núna, svo er líka eitthvað af þessum sem þarf að senda til Íslands svo það er betra að vera bar nógu snemma :D

Jæja, ætla að eyða þessu föstudagskvöldi í að þvo þvott og reyna að vinna eitthvað í verkefninu mínu.

Svo er surprice-dinner einhversstaðar á morgun....víí...það er jú eitt ár síðan við turtildúfurnar rákumst á hvort annað....tíhí:)


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 17:46:17 / Himinbjorg

Glöggmys og pepperkaker

Er á leiðinni í glögg og piparkökur hjá Agnes í bekknum, elska sænskar hefðir :D

          

***********************************

TÜSCH!

***


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 13:26:27 / Himinbjorg

Haruki Murakami

Sunnudagur og ég er búin að þrífa, þvo þvott, versla í matinn, er með kökur í ofninum og ætla út að hlaupa eftir það...líður eins og ofvirkri húsmóður in the 60's...SVO er planið að setjast fyrir framan tölvuna og klára allt sem ég á eftir að gera fyrir skólann á morgun.

Það er svo yndislegt að eiga svona sunnudaga þar sem maður einhvernvegin safnar öllum verkefnunum sem biðu alla vikuna og klárar þau á nokkrum klukkutímum. Kíkti til Caspers gamla bekkjarfélaga í gær á Blegdamsvej. Púff, þvílík íbúð sem drengurinn er búin að fá fingurna í, hann seldi íbúðina sem hann átti og var búin að gera upp að töluverðu leyti og fékk víst fullt af pening svo nú leigir hann þessa 130 m2 íbúð ásamt nokkrum Spánverjum. Það var stútfullt af fólki þarna í gær og Daði kallinn sérstaklega ráðinn DJ fyrir kvöldið, mig langar svo að kunna að vera DJ..:) Hitti nokkra úr gamla bekknum og það var gaman að ná að spjalla aðeins við þau. Ég tók því nú sem betur fer rólega og var komin heim um klukkan 02.

Var að uppgötva snilldar bókahöfund; Japanann Haruki Murakami. Fékk lánaða bók eftir hann frá henni elsku Kaju, og ég hef bara ekki slitið mig frá henni....vonandi á hún meira eftir hann svo ég geti lesið meira. Það er svo gott að lesa á íslensku, nú þegar maður talar meir og minna dönsku allan daginn, að eiga eina bók á kvöldið sem fjallar um eitthvað allt annað en arkitektur ! :)

** Eigiði góðan sunnudag elskurnan mínar....:D **


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.11.2006 14:53:19 / Himinbjorg

Ákvarðanir

Sit í skólanum og er að byggja módel (er að bíða eftir að límið þorni), það er góð tilfinning að vera komin svona á fullt aftur og þá meina ég gjörsamlega á fullan kraft, langir dagar í skólanum og margir kaffi bollar. Næstu tvær vikur er kursus hjá okkur með tilheyrandi hópaverkefnum og samsíða kursinum höldum við áfram í okkar verkefni og við skilum stórum hluta verkefnisins þann 15. des. Svo var ritarinn okkar svo elskuleg að senda e-mail á alla um porfoliuna sem við skilum í febrúar svona bara til að stressa okkur aðeins meira. Við skilum öllum verkefnunum okkar á A3 formi, þá meina ég öll verkefni sem við höfum gert hingað til frá því við hófum skólagönguna....þessi mappa segir svo til um hvort við "megum" taka bachelorverkefnið í vor. Púff!! Ágætis pakki væntanlegur 8|

Ræddi við hana Elínu í hádeginu í dag og áttum við ágætis spjall um framtíðina og hvað á að gera eftir bachelorverkefnið....? Halda áfram hér, taka praktik, fara í annan skóla, taka pásu frá arlitektúr.....ákvarðanir, ákvarðanir, af hverju er mamma ekki hér svo hún geti bara ákveðið þetta allt fyrir mig....hún var alltaf góð í því í gamla daga :lol:

Á morgun er housewarming hjá Casper úr gamla bekknum mínum og verð ég að viðurkenna að mig langar mikið til að hitta þessa krakka aftur eftir langan tíma, svo margt að tala um, svo er annað party í boði líka, þar þekki ég flóruna minna en gæti samt verið huggulegt...hmmm, hvað á ég að gera? Það er alltaf svona að allt kemur í einu, í staðin fyrir að dreifast jafn yfir helgarnar. Ég byrja að minnsta kosti laugardaginn á að vinna í SMAK og melti þetta aðeins. Svo er maðurinn að verða 29 ára, hvað á að kaupa...?? Ég er alveg lost í svoleiðis málum....auðvitað á hann allt, og ef það er eitthvað sem hann vantar ekki þá er það föt!! hmmm


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.11.2006 14:51:25 / Himinbjorg

Tvöfaldur bónus!

Repúblikarnir í minni hluta og Rumsfeld hættir sem varnarmálaráðherra eftir alltof löng 6 ár, ég er ánægð. :) Þetta eru góðar fréttir og þýðir að loksins eru Bandaríkjamenn farnir að átti sig á þeirri stöðu sem þeir eru í og nú er kominn tími á breytingar. Bush heldur því fram að þrátt fyrir þessar breytingar muni hann samt sem áður sjá fyrir hagsmunum bandarísku þjóðarinnar, hann þarf þá að gjöra svo vel að byrja á því að bera þetta undir demókratana fyrst þar sem þeir koma til með að vera í meirihluta í fulltrúadeildinni. Einnig las ég að þetta þýðir að demókratarnir geta skipað þingnefndarformenn sem ráða miklu um frumvarpavinnu næstu tvö árin, til dæmis geta þeir rannsakað aðdragandann að Íraksstríðinu!

Púúú á Bush og alla hina kúkalabbana!


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2